ara
Draumar mínir og Skynjun.

Á þessari síðu minni mun ég deila með ykkur öllum mínum
draumum og skynjunum,sem ég hef verið að skrifa í bók mína,
draumar mínir og skynjun,þar sem ég hef verið dæmd svo harðlega
fyrir skoðanir mínar á andlegum málum. Þess vegna hef ég ákveðið að búa til þessa litlu heimasíðu,til að leyfa ykkur öllum að fylgjast með.
ég mun skrifa svo til daglega í bók mína og
vona ég að skilaboðin komist öll til skila.
Ég vona að þið skrifið sem mest í dagbók mína og þar getið þið spurt mig um allt mögulegt,og munið það að við styrkjum hvort annað og léttum á okkur vannlíðan.Ég skal svara ykkur öllum um leið.Guð blessi ykkur öll elskurnar mínar..
Kveðja Lára Ólafsdóttir.
DRAUMARNIR MÍNIR.

27 mai 2009. kl 09:09
Mér finnst ég vera stödd hjá fé mínu sem ég er að sinna
þá sé ég þríhyrning skrítin yfir íslandi sem myndar þrjár eldsúlur
og inni í honum er talan 27,tákna ég þetta sem mikin jarðskjálfta
með í eftirför þrjú eldgos í einu.finnst mér þetta vera tákn.

4 Janúar 2010. kl 16.02
Mig dreymir að ég er stödd fyrir utan stórt hús ég er að tala
við konu sem ég þekki vel,segir hún mér að ég eigi að keyra
stóra hvíta rútu með erlendu fólki upp á heklu.
í rútuni er þekktur maður frá útlöndum sem er leikari
betur sem þekktur sem (Rowan Atkinson) biður hann
mig að hætta við ferðina við það vakna ég.
Tákn þessa draums hef ég enn
ekki ráðið,en þetta þýðir sannleikur
á eftir að koma í ljós.

5 Janúar 2010. kl 17:09.
Mig dreymir það að pabbi kemur til mín og tekur hann utan um
og fjölskyldu mína og svo fyllist allt af hrauni sem rennur svo
heitt allt í kringum okkur og yfir höfuð pabba hann verndaði
okkur öll við skaða síðan segir hann lára mín þetta verður allt
í lagi þið verðið öll pössuð þegar þar að kemur óttist ekki.
en hekla er að fara að gjósa,hann segir við mig að lokum
haltu þínu striki ég mun sjá um að allir verði verndaðir en komdu
þú skilaboðunum til fólksins það mun hlusta.við það vakna ég.
Tákn þessa draums er það
að við skulum hlusta á hann
við verðum pössuð sem gull
óttist ekki við erum svo
lánsöm.

6 Janúar 2010. kl 07:45.
Mig dreymir það að ég er stödd á suðurlandi og er ég að leita
að týndu barni í á einni en þar sé ég skólasystur mína og erum við allt í einu að fara upp í mjólkurbíl til að keyra en allt í einu
fer bíllin að renna aftur á bak og get ég ekki stöðvað hann
fyrir en eftir margra metra.Bílinn stoppar við olísplanið og er þar allt í einu kona og maður að dæla skít upp úr holræsi og fylla þau mjólkurbílinn af skít verð ég voða reið og sár.reyni ég að stoppa þessa vitleysu af en tekst það ekki við það vakna ég.
Tákn þessi veit á gott fyrir alla
það er gott að dreyma mjólk
og skít.skítur er tákn auðæfa
mjólk er tákn hreinleikans.

8 Janúar 2010. kl 10:11
Í draumi mínum er ég stödd hjá systur minni sem var mér mjög góð,erum við að undirbúa okkur í mjög langt ferðalag.Allt í einu
er ég að tala við frænda minn,en svo finnst mér ég vera komin
aftur heim og er ég að reyna að grafa niður veskið mitt fyrir framan húsið mitt.og er hann siggi minn að hjálpa mér með það
síðan finnst mér að það séu komnir fullt af breskum hermönnum
eru þeir mjög illir og miða þeir byssu að höfði mínu,verð ég alveg skelfingu lostin við þetta uppátæki þeirra og fer ég að gráta
síðan eru komnir þjóðverjar,eru þeir að ganga í hús og smala fólki saman og fara með það eitthvað en er allt fólkið klædd í hvíta búninga svo finnst mér ég sjá stóra flugvél fyrir framan húsið mitt og er öllu fólkinu komið fyrir í þessa flugvél.Síðan er ég komin á stóran flugvöll og fyrir framan hann er mikið vatn eða sjór
í því sé ég mörg höfuð fljóta þar upp mjög ógeðslegur draumur
Tákn þessa draum er að nú munu
þjóðverjar og breta vilja taka af
okkur auðlindirnar fyrir þessa
icesaveskuld þannig tákna ég það.

10 janúar 2010. kl.19:00.
Mér finnst ég vera á leið minni að holti með (sigga) mínum til að ná í (sigurjón) á leið okkar til baka erum við komin á þjóðveginn
sé ég allt í einu heklu hreinlega springa með ógnarkrafti,að stórar eldboltar fljúga út um allt og lenda fimm boltar fyrir framan bílinn.Ég kemst yfir þessa bolta án þess að brenna mig við það vakna ég.
Tákn þessa draums gæti þýtt
að stjórnin springi.

27 Janúar 2010.kl. 09:16.
Í draumi mínum sé ég (Jesú Krist) hann kemur til mín réttir mér hendur sínar og biður mig að nefna (10) sjúkdóma.Þessir sjúkdómar munu koma við sögu,en allir munu þeir læknast á undarlegan hátt.Síðan er ég komin inn í munkaklaustur með fullt af munkum nema það að þeir eru allir svo skítugir og allt þar inni er svo skítugt,svo finnst mér (Jesú) koma til mín og gefa mér gjöf
eru þetta( 27) kindur,síðan segir hann við mig (Lára) mín ég skal gæta þín og þína,Ég finnst ég gefa honum gjöf sem eru litir og bið ég hann að skapa eitthvað fallegt.hann tekur utan um mig og leggst ég á brjóst hans,mér finnst í draumnum ég fyllast öll af undarlegri hlýju,við það vakna ég.

Tákn þessa draum er mjög góður
þar sem jesú er að minna okkur á
að hann er alltaf til staðar fyrir okkur
að dreyma krist er það besta
sem nokkur maður
getur dreymt.

MÚSADRAUMURINN.
13 Júlí 2010. kl. 11:15.
Mig dreymir að ég sé mús í húsi mínu
allir urðu hræddir og öskruðu,varð músin svo hrædd við þessi læti að hún stekkur upp í glugga,ég er beðin um að grípa músina,gjörði ég svo þá tek ég eftir því að hún er að fara gjóta,en músin var( rauð ) á lit við það vakna ég.
Tákn þessa draums hef ég
ekki getað ráðið enn.

31 Júlí 2010. kl. 21:31.
Mig dreymir að ég er stödd á sveitabæ einum,mér er litið á mýri eina og þar kemur upp úr jörðinni (9) metra hár vatnshver og
gaus hann (9) sinnum upp í loftið,síðan dreymir mig það að (3) (hrafnar) koma fljúgandi til mín og litill maður situr á baki enum (hrafninum) mér finnst ég vera að gefa þeim að borða lambslæri
svo spyr ég hrafnana spurningu því þeir virtust geta skilið mig og ég þá.ég spyr hvort að guð launi fyrir hrafnin,og þeir kinnka kolli
við það vakna ég.
Tákn þessa draums er enn
óráðinn.

SKYNJANIR MÍNAR.
1 Janúar 2010. kl. 08:40.
Ég skynja mikið um barnshvörf.
Ég skynja eitthvað ljótt með kirkjur á íslandi,eitthvað með skemmdarverk,finnst mér það vera (5) kirkjur.Nýr maður labbar inn í ríkisútvarpið og verður hann kallaður maðurinn með gullröddina. (2)

5 janúar 2010. kl. 14:36.
Ég skynja margar litlar flugvélar fljúga yfir suðurland,fljúga þær allar lágflugi forvitni grípur um sig.
Ég skynja hvítan hlut falla til jarðar.
Þjófnaður verður mikll á suðurlandi að mér finnst og er það aðalega í sveitum og auðum húsum.ég skynja mikla þoku,50 stiga hiti mun gera fólki lífið leitt einhverstaðar í útlöndum að mér finnst.

7 Janúar 2010. kl.17:00.
Ég hef tilfiningu fyrir stóra peninga.Svindl í útlöndum einhverstaðar í usa.Lítil íslenskur drengur mun heilla þjóðina með fallegum söng sínum.Ég skynja stærsta lestarslys sögunar úti heimi.

9 Janúar 2010. kl. 15:45.
Ég er að skynja margt fólk í evrópu verða fyrir miklum að mér finnst matarskorti.jafnvel rafmagnsleysi,er ég nær þýskalandi.Mér finnst að það verði tekið fyrir af guðshendi fyrir öll rán og svindl,er þetta mjög sterkt.Undarlegir sjúkdómar læknast af óútskýranlegum hætti sem vekur undrun lækna,jafnvel rís fólk upp frá dauðum og eitt atvikið verður á konu sem deyr í einn sólahring en vaknar aftur.Fólk sem er dauðvona læknast sjálfkrafa sem engin skýring er á.Ég skynja stóran ísjaka stór sem fjöll sem brotnar frá.Nýtt lyf við hiv verður fundið upp að mér finnst og er það búið til úr vatni og rauðum rósum aðalega blöðum rósarinnar.Það verður talað mikið um vatnið og hvað er hægt að gera úr því.Ég skynja olíu vatn gull og demantar,og er það ekki langt frá íslandi.Mikið verður talað um íslenska matinn hvað hann er góður og er í hlutverki hinn alíslenska rjómaterta.Fyndið það?.
Margt undarlegt tengist íslandi sem er lukkan okkar og vernd og mun það vekja heimsathygli,ísland verður vinsælasta land í heimi að mér finnst.Íslensku dýrin okkar munu heilla heiminn bráðum og er það sauðkindin okkar og hundarnir okkur þessi alíslensku dýr.Eitthvað gerist í sjónum rétt hjá íslandi ég skynja stóra skeppnu langt frá.Ég skynja mikin jarðskjálfta úti í heimi bráðlega.

28 Janúar 2010. kl. 08:09.
Ég hef mikin óhug og skrítna tilfiningu fyrir þessari tíð,hún er alls ekki eins og hún á sér að vera.Annað slysið mun vera á selfossi við krónuna eða við ána.Ég skynja marga undarlega hluti gerast á íslandi á þessu ári.Eitthvað með dýrin okkar að gera vekur athygli.Annað finnst mér með hvað margir íslendingar munu fara að upplifa barnið í sjálfum sér og gömlu tímanna.Og verður þetta í mörgum íslendingnum.Í skyjun minni verður eitthvað með hey að gera eða slátt,verður mikil spretta óvenjuleg mér finnst ég skynja hvað sólin verður góð við okkur í sumar.Nýr foss gæti fundist í helli á íslandi en bak við hann mun annað finnast.Það verður fundið nýtt lyf sem er framleitt úr blómi eða jurt einhverstaðar.Gamla fólkið okkar mun gera eitthvað skemmtilegt í sumar,hugmynd sem eldri maður fær.Ferðalög innanlands verður mikið þetta árið og verða miklar tekjur af því.Nýr mjólurdrykkur verður búin til að mér finnst og verður hann mjög vinsæll.Íslendingar verða mjög hugmyndaríkir þetta árið,og verða margar uppfinningar framleiddar í útlöndum að mér finnst.Mér finnst að fólk verði duglegt að redda sér þetta árið enda veitir ekki af,en það reddast allt að lokum.

31 Janúar 2010. kl. 14:16.
Í skynjun minni,skynja ég alla íslendinga gráta mikið yfir atburð sem mun snerta alla,líklega dauðsfall.Mér finnst eins og það sé verið að segja mér að vorið sé komið og við munum fá snemma góða tíð,með allt það góða sem því fylgir.Undrun eða gleði grípur um sig næstu daga eða vikur og einhver kemur með glaðning með sér.Suðurland fær nýjan fógeta,að mér finnst.og mun hann heilla alla fyrir góðmennsku sína.
það verður eitthvað um ættleiðingar á útlendum börnum hingað til lands.
Eitthvað með það að vilja koma til íslands,en líklega verður tekið fyrir það,þar sem ekki verður nóg til af húsum.Útlönd verða fyrir leiðinlegum málum.Ég finn sterkan hlýhug frá dönum,svíum,noregi,færeyjum og jafnvel frá Ástralíu.Loftsteinn meðalstór lendir í sjó á plánetu einhverstaðar þar sem endanleg sól er alltaf.Pláneturnar tvær sem eru eins og jörðin mun finnast bráðlega og eru þær með hafi löndum og jafnvel súrefni.Mér finnst að gullæðið sé að koma aftur í leitirnar og líka demantar að mér finnst í útlöndum.Bandaríkin gæti verið. Nýjar hestasýningar verða teknar í notkun í bretlandi að mér finnst þar sem hestar eru látnir dansa og stökkva yfir byggingar án knapa og hnaks og verður þetta æðisfaraldur,SKRÝTIÐ?.Í kína mun verða fundið upp nýjar lækningar á mönum til að lengja lífið hjá gömlu fólki sem er komið yfir 50,eitthvað á þá áttina.

5 Febrúar 2010. kl. 15:25.
Í skynjun minni er sorglegt mikill missir íslendinga verður innan skamms þjóðþekktir virðast ætla að kveðja land og þjóð.Vorið virðist ætla koma snemma með mikili sól.Hún sækir mikið að mér Bretadrottning þar sem mér finnst hún vera að heiðra íslenskt fólk eitthvað svoleiðis.Ég sé breytingu hjá fréttamanni hér á landi þar sem hann mun bjóðast starf erlendis er þetta maður frá suðurlandi að mér finnst.Geir frændi ætlar að gera það gott úti í hollywood að mér finnst gott hjá honnum.Mér finnst að stórt snjóflóð koma úti í heimi,þar sem margir frægir koma,margir munu jafnvel farast og týnast margir.Hotelið þarna er mjög frægt.Ég skynja mjög háar öldur en þær eru svo stórar þær munu ekki valda skaða að mér finnst þær eiga eftri að sjást úr lofti.
Ég skynja mikin snjó og kulda eigi eftir að herja á evrópubúa.Ég skynja það að eftir einhvern tima eiga flugslys eftir að heyra söguni til útaf nýrri tækni.

18 Febrúar 2010. kl. 20:55.
Ég skynja marga jarðskjálfta herja á heiminn og alla leið til ástralíu og ameríku.Nú mun finnast á næstu fegrunarefni sem búið er til úr dýraskít eða svo.Ojj. Ég skynja moldarflóð eða einhversskonar flóð. Mér finnst ég skynja mikið af sebrahestum og gírröffum.Eitthvað kemur upp í færeyjum og grænland mun taka í firsta skipti í keppni eða söng.Ný eyja finnst fyirir ofan grænland að mér finnst.eitthvað gerist í finnlandi á næstu dögum(Ég geri mig grein fyrir því að sumnt af þessu er komið er komið fram og sumt ekki) Mér finnst að það verði stuldur á hundum úti í heimi ógeðfeld atvik munu koma upp og tengist það allt dýrum. Klikkaður læknir ætlar að nota sæði úr öpum í mannfólk út af einhverjum rannsóknum hálf ógeðslegt. ÉG skynja list þar sem hús eru byggð úr korkki og eru þau sett út á haf og í þeim er kertaljós á þetta að vera einhverskonar list sem ungur listamaður finnur upp.Ég skynja níu atburði sem tengjast töluni níu og verðu mikið talað um þetta. Mörg eldgos byrja úti í heimi að mér finnst,náttúran er eitthvað reið.Mér finnst að margir upplifi þá sýn að sjá jesú krist,trúaðir sem ótrúaðir.Ég skynja svakaleg stórt geimskip koma að jörð.Mörg undrabörn fæðast sem hafa einhverja svakalega hæfileika og mun það sjást strax.Ég skynja sem sending til jarðar og er það til góðs og eru send til að vernda fólk sem á að lifa lengi.Einhver stórkostlegur atburður verður góður.Ég skynja feneyjar verða fyrir hamförum þar sem hluti mun sökkva í sæ að mér finnst.

20 Febrúar 2010. kl. 23:16
Mér finnst sem að jarðskjálfti upp á 9 gæti riðið yfir þá og þegar úti í heimi.Mér finnst að íslendingar gætu verið ok,og þá mun þessi undrun vakna hjá fólki.Af hverju? eru íslendingar svona lánsöm og heppin þjóð þetta á að gera okkur vel.ljós mun birtast yfir suðurlandi.Ljót ælupest mun leggja fólk algerlega úti í heimi.Skrítnir fuglar koma til jarðar með tvo gogga að aldrei hefur annað sjést.Skrítin skynjun það?Dvergar verða vinnsælir gerð verður kannski stórmynd og eru allir leikarar bara dvergar og munu dvergar stjórna þessari stórmynd.Mér finnst að stór beinagrind af skeppnu mun finnast í eyðimörk eitthvað líkt risaeðlu en er samt ekki það.Mér finnst að margir munu fara að búa til sína eigin hluti allt frá húsgögnum til leirtaus vegna kreppunar.Færeyingar eru efst í mínum huga þessa daganna þéir eru að eignast mikin auðæfi sem jörðin hefur falið þeim frá upphafi og veit einginn hvað þetta er,eða hvað hægt er að gera við þetta.Nasa mun sjá( 9 ) geimför og verður það undrun mikin talan níu verður rannsökuð.Kirkjur verða eftirsóttar um allan heim að dásemnd verður.Mér finnst að mörgum dýrum í dýragarði eiga eftir að verða sleppt af einhverjum dýraverndunarliði dýrastríð verður.Tölur láta gera vart um sig.Ískápar verða notaðir í gerð bíla og báta.Margt er að breytast.
Ég tek það fram
að þó að ekki sé allt
komið fram, mun mikið
af því koma fram,
gefið þessu smá tíma
til að sanna sig þó að
sumt sé alveg fáranlegt
þá kemur það samt í ljós.
VITIÐ TIL.

9 Mars 2010. kl. 21:16.
Ég skynja eldgosin mín þrjú eru á næsta leiti.Eyjafjöllin,katla og jafnvel hekla,eitthvað með hrinur í grímsey.Ég skynja fallegan hraunfoss straumurinn inn í landið verður mikill.Evrópa verður stopp útaf miklum skýjum að hálfgerð reiði grípur um sig.Mér finnst að ósanngjarnir menn séu að fljúga með fólk milli landa á gömlum vélum,fyrir mikin penning.Eitthvað kemur upp í sambandi við bermudaþríhyrniginn að gera.Kona lendir í honum og kemst aftur út en hún verður fyrir mikili reynslu sem hún reynir að deila með fólki en enginn trúir henni en hún mun öðlast mikin hæfileika.(7) blöð munu finnast með sannleika sem á eftir að koma í ljós og er það hér á íslandi.Ég skynja eitthvað með stórt skip sem lenda í vandræðum.Mikið er framundan í bretlandi.Erlend fyrirtæki reyna að selja eitthvað hér á landi.Stórstjörnur verða mikið í sviðsljósinu allskonar vesen þar.Forsetin okkar mun segja okkur eitthvað magnað.Ég skynja að gott afl komi yfir ísland.Það er vonin okkar sem eru að koma.Fólk á íslandi mun fara að rækta nýjar matvörur.Mér finnst að íslendingar munu lifa lengst allra þjóða í heiminum.Mjög blátt vatn finnst hér á landi í bergi einu einhversstaðar á austurlandi.Einhver íslenskur maður mun gera það gott með stórstjörnum í hollywood að mér finnst.Leiðtogi á íslandi með mjög hvítt hár gerir kraftaverk mikið hér á landi,sem kemst inn í þetta land til að tala til og breyta.Það mun sjást mannsandlit og ljónsandlit hér á íslandi.

31 Mai 2010. kl. 19:35.
Ég skynja mikið með litlu madeleine hún er á leið að mér finnst til Þekkt staðar og lendir á eyju sem ber stafina c eða v.Þaðan er hún á leið til annasr land þar sem há strá koma upp úr vatni einu.Það sem er að gerast á íslandi. ég skynja að miklir penningar eru að koma til fólks gæti verið hækkuð laun eða að gamli tímin sé að koma aftur,gæti verið gott.

11 Júní 2010. kl.14:53.
Ný eyja auðæfin okkar þrjú eldsúlurnar þrjár.Olían ,hitin ,og gullið, þetta má ekki fara til kínverja þeir vilja gefa bréf en fá í staðin hitan okkar og olíuna okkar, svo þeir geti breytt því í peninga sjálfir og grætt á því sjálfir.Ég vil að auðæfin okkar þrjú verði pössuð fyrir litla fólkinu sem ég skynja ekki gott af. (LITLA FÓLKIÐ/KÍNVERJAR) Landið okkar er guðsland pössum það og verndum allt sem á því er því allt er það okkar látum ekki taka það af okkur,því þessi auðæfi okkar eiga eftir að hjálpa okkur fjárhagslega til margra ára.
Teikning fylgir þessari skynjun,
sem er til í bók minni,
hægt verður að sjá hana seinna.

13 Júli 2010. kl. 13:38.
Ég skynja margar skrítnar verur koma til jarðar,bláklæddar,og eru þær kallaðar sólótítusverurnar,þær heila gefa lækna og skapa,fólk mun vera mjög hissa ef það sér það,ekki veit ég hvenar af þessu verður skal ég ey tjá mig um.Margt skrítið mun heimsækja þessa plánetu okkar,ég skynja margar hvítar flugvélar vera lágt á lofti og ein þeirra er rauð og stærri.það er eins og mikið um loftför séu að koma hér við,ég hef aldrei vitað annað eins? Peningar og aftur peningar virðist ætla að heimsækja ísland heim.Vonandi er það gott.Vatn mikið fallegt vatn skynja ég allir sækjast í þetta vatn,vegna þess að það kemur úr litlum kletti,þetta vatn er ekkert venjulegt vatn,þetta vatn gefur tekur læknar heilar breytir og skapar,það mun vera kallað maríuvatn vegna einhvers atburðar sem mun verða þar.

18 júli 2010. kl. 23:43.
Ég skynja slæmt með vonda menn ,upp kemst það að þeir hafi selt eignir sem þeir hafi tekið af fólki með hótum og hefndum,að mér finnst.Þessar eignir eru nú eignir útlendinga einhverja valdamikla manna sem nú séu að koma til að innheimnta,mér finnst þetta vera í norður og suður,ég skynja tvo loftsteina koma til jarðar og lenda á usa og evrópu,ég skynja að brátt kemst eitthvað upp með veikindi kúa hér á landi vegna ösku sem er í grasi og mun eitthvert líffæri myndast í kviðarholi kúa,jafnvel eitthvert fóstur,finnst þetta mjög skrítið.Mér finnst veðurfar hér á íslandi hafa undarleg áhrif á nátturru svo um getur mikið gæti orðið um eldingar og þrumur hér á landi.eitthvað um bíblíu verður í dagsljósi um allan heim.Fólk fer að gera marga skrítna hluti sem tengist biblíuni og segir fólk að guð hafi beðið það um að gera þetta og hitt.Einn mun reyna að smíða stórt skip sem hann segir að eigi að fylla af lífi,einn reynir að opna vatn eða haf,ein kona mun reyna eitthvað með fæðingu þó hún hafi aldrei sofið hjá eða átt maka,ný tré tegund mun finnast það verður fundið upp ný tegund af eldsneyti sem á að duga í ár eða nokkrar vikur bæði á bíla flugvélar og báta.Sprenging verður í ferðamannastraumi hér á landi bráðum að mér finnst einhver erlendur aðili reynir að gera lítið úr íslensku þjóðinni með háttarlagi sínu og mikið falls kemur upp með hann,hann er með hvít skegg.ég skynja nýja eyju sem ekki hefur verið vitað um síðan jörð var til þessi eyja ber nýtt nafn og er hún við bermúdahaf allir eyjabúar útdauðir en eitthvað skilti finnst sem ber nafn þessara eyju,þoka er víst allt um kring.Mér finnst að land finnist við ísland sem er grafið í sjó,þetta er eins og ísland nema það snýr öfugt,þetta land er allt glóandi af undarlegum lit,ég er alltaf að skynja svo mikin bláan lit allt í kring en fæ enga sérstaka merkingu um það.Mér finnst að í kína mun fólk sjá eins og engla svífa niður til jarðar en skil ekki hvað það þýðir.Gullna borgin eða atlantis verður bráðum talað mikið um í fréttum á næstuni eitthvað með það að gera,en er ég ekki alveg að skilja hvað það gæti verið.

22 Júlí 2010. Kl. 12.00.
Talan 22 er óhugnaleg.margar tölur skynja ég svo stíft,ég kalla þær hjálpartölurnar sem ekki þarf frekari skýringu á,hér koma þær.
24,27,28,43,72,88,105,112,120,300,777,900,1000,1001,2002,2009,3000,7000,9000.
Þessar tölur skal ætíð hafa í huga,eins og sagt er um þessar tölur eru okkur ætlað,ég skynja svo mörg stór hvít fjöll eins og fjöll sem hugga.Stór og merkileg lykt mun finnast víða og engin skýring mun finnast á þessari góðu lykt.Gul blóm svo er þessi blái sterki litur sem allir sækjast svo fast í.Ég skynja stórskrítin mann sem vill halda tónleika upp á stóru fjalli vegna hljómburðar þess.Þetta fjall líkist (monteverst) og er snjór hálfur á þessu fjalli.Ég skynja stærsta jeppaferðalag ever út í heimi sem hugmynd einhverja manna sem vilja halda þetta hvert ár.Ég skynja mat vera búin til,allt er eitthvað svo risastórt fyrir mér núna.Ný keppni verður fundin upp og tengist það fallegum húsum.Mér finnst að það finnist stærsta beinagrind í heimi,og er hún af manni,líklega 20.000 ára gömul eins mun finnast önnur stór beinagrind af dýri hund kannski,partur af geimskipi finnst jafnvel eftir fimm ár.Desember er mánuður hörmunga finnst mér að gæti orðið.Demantar finnast í útlöndum og eru þeir risastórir að æði grípur um sig finnast þeir í jarðvegi sem er mjúkur.(OSAMA BIN LADEN) er að skríða upp úr holu sinni í bláum gallabuxum,rakaður og lítur vel út hann er með ljósan hund að mér finnst ég finn tengingu við hann og ísland,hef teiknað upp teikningu af líklegum felustað hans.En óttist ekki þetta getur þýtt svo margt.

26 júli 2010. Kl.14:45.
Nú verður sprenging í stjórnmálaheiminum ósætti mikil,reynt verður að taka einhvern hlut til baka en verður það ekki hægt.Mér finnst sem að mikil ólæti og slagsmál verði á næstu dögum þar sem margt fólk er að skemmta sér og verður þetta eitt stærsta mál sem upp kemst hjá lögvaldinu,tengist þetta erlendu fólki ekki gott það.Mér finnst sem mikil rigning séu á næsta leiti að flóð gæti orðið mér finnst sem að einn af stjórnmálamönnum okkar fái jafnvel hjartaslag eða áfall.Eitthvað kemur upp með Obama.Eitt mannslátið enn verður og er það frægur maður hér á íslandi.Ég skynja enn eitt barnshvarf erlendis og er það drengur mjög frægs fólk,hann mun koma í leitirnar mjög fullorðin maður.Það verður stórslys einhversstaðar úti í heimi,þar sem verið er að vinna með stóra bíla upp á fjalli mikil sorg grípur um sig,mér finnst að eitthvað gerist með brúna í San Fransisco.Hundar veikjast af undarlegum sjúkdómum.Mér finnst að skepnur jafnvel fólk vaxi hratt með undarlegum hætti,út af einhverju efni sem það hefur komist í.Ég er komin til írak út í eyðimörk alveg á enda landsins þar standa upp úr sandi þrjár steinsúlur og önnur er brotin þar rétt hjá er sandhóll með örfá strá á,ofan á er járnplata en undir henni er stórt virki með löngum göngum er þetta klædd með járnkæðningu að innan og er eins og allt sé með miklu rafmagni sem ekki má snerta,þetta virki er ekki hægt að finna úr gerfihnött vegna rafmagnsins sem er í veggjunum þar er fullt af fólki og börnum í felum.

31 Júli 2010. Kl. 20.07.
Mér finnst svo margt skrítið vera að gerast á íslandi ég skynja margt fólk fara að búa í hjólhýsum eins og í ameríku,þetta fólk á erfitt finnst mér eins og það hafi misst allt,ég skynja margar sprengingar úti í heimi,ég skynja eitthvað svakalegt gerast sem ég fæ ekki skýringu á,mér finnst eins og það verði stórbilun í tölvum sem geymi allskonar upplýsingar um fólk og reikninga þeirra og ruglast allar tölur varðandi innistæður hjá fólki eins og manneskja sem á kannski 5000 krónur á bók fær allt í einu kannski 20 milljónir og mun það taka langan tíma að laga þetta,mér finnst þetta vera hryðjuverk en þetta gerist ekki á íslandi að mér finnst.Mörg dýr munu sleppa út úr dýragarði og sleppur það út á götu að skelfing grípur um sig.

23 September 2010 kl.09:30.
Ég skynja margar skrítnar skepnur með skrítnar tennur, haha fyndið það
ég finn breytingu hjá bretadrottningu,enhver svik eða þess háttar kemur upp samsæri að mér finnst.Upp kemur mikil deila hjá konu og manni hér á íslandi sem gæti staðið í heilt ár að mér finnst.mér finnst að það munu finnast nýjar lífverur í sjó jafnvel mennsk.Ég skynja þrjár plánetur tvær gular og ein blá og eru þær í eini línu eins og strik mun það sjást
um stjörnukíkir,það mun sjást mikið um stjörnuhröp út í geimi finnst mér.
Ég skynja mörg mannshvörf en þau skila sér aftur mjög breytt með merki á hendi eins og þríhyrningur eins og þau séu brennimekt,skrítin þessi skynjun.Það er mikið að gerast hjá FBI eittvhað er að koma í ljós eftir (9) ár eða svo.Mér finnst að fólk sem hefur verið rænt sem barn muni snúa til baka og verður þetta mikið í fréttum,mér finnst að það muni sjást níu loftför yfir níu borgum einhver staðar úti í heimi og verða margir varir við þetta.Taska og jafnvel kista mun finnast og í þeim er gull og peningar eitthvað svoleiðis allveg nýtt mál mun koma upp með foreldra mccann stelpuna mjög furðulegt.Mér finnst að það verði eitthvað með fólk að gera að það er eins og það sturllist út af óútskýrilegu atviki.Ég skynja mikið um flutning fólks frá landinu en er þetta erlent fólk og skynja ég mikin hatur frá fólki gagnvart öðrum sem ég fæ ekki skýringu á mér finnst nýtt stríð vera að byrja og er engin miskun sýnd þar,ég kalla það fjórða stríðið margt skrítið og creppy er að byrja.

Ég setti nokkur meditation lög inn á síðuna
sem er hægt að hlusta á
þau eru sko geðveik flott.
----------------------------------------------------------------------------------------------
Tölurnar.

TALAN 1
Er kraftmikil tala, tákn einingar, og heildar. Hún er líka tákn upphafsins og er þessvegna tala guðs, alheimsins og sólarinnar.
Stjörnumerki hennar er Ljón. Litir tölunnar eru appelssínugulur, gulur og gylltur.
TALAN 2
Hún er tala tvíhyggju, jins og jangs, karls og konu, nætur og dags og annarra andstæðna. Samhljómur, samvinna, lagni og aðrir slíkir þættir tengjast tölunni 2. Hún er tengd mánanum og stjörnumerkinu Krabbinn.
Litir tölunnar eru pastellitir.
TALAN 3
Hún er tala vorsins, frjóseminnar og vaxtarins.Hún getur verið tákn upphafs og nýrra verkefnis.
3 er merki þrenningar og þessvegna tákn heilagrar þrenningar, föðurins, sonarins og hins heilaga anda, en líka tákn fjölskyldunnar, föður, móður og barns.
Talan 3 hefur því sérstöðu, hún er talin heilög og býr yfir töframætti.
Sé talan margfölduð með sjálfri sér verður útkoman 1 og það er alveg sama hversu oft talan 1 er margfölduð með 1, hún verður alltaf 1.
Þessvegna er talan 1 einstök og stöðug tala, tala guðs.
Sé önnur talan í talnaröðinni margfölduð með tölunni einn, verður útkoman 2. Þessu er öðruvísi háttað með þriðju töluna í talnaröðinni.
Sé hún margfölduð með tölunni á undan verður útkoman skyndilega allt önnur tala sem er mun stærrien bæði tveir og þrír, talan sex.
Talan 3 er þess vegna frjósöm tala og þrátt fyrir smæð sína felur hún í sér margföldunarhæfileika sem hvorki einn eða tveir búa yfir.
Tvítalan felur í sér andstæður þeirra stríðandi afla sem halda veröldinni gangandi.
Hugsi menn sér línur milli eintölunnar og tvítölunnar, milli hins einstæða guðs og andstæðra póla tvítölunnar, myndast þríhyrningur.
Þannig myndar guð jafnvægi milli stríðandi afla og felur um leið í sér guðdómlega þríeiningu.
Talan þrír kemur fyrir með margvígslegum hætti og mismunandi samhengi innan ólíkra menningarsvæða.
Svo víða koma þrír við sögu í öllu lífi mannsins að ætla mætti að honum sæe að einhverju leyti eðlislægt að hugsa í þrenndum og að lífshrynjandinn feli í sér þrískiftingu.
Allt á sér upphaf, miðju og endalok.
Menn eiga fortíð, nútíð og framtíð.
Mælivíddirnar eru þrjár, hæð, lengd og breidd.
Gríska orðið fyrir .. stærstur" er tris-megistos, það er þrisvar sinnum stór, og Rómverjar nefndu þann sem var ter felix eða þrisvar sinnum sælan.
Skaut konu er þríhyrnt og kynfæri karla er þrískift. "Allt er þá þrennt er".
Talan 3 er tengd Júpiter og stjörnumerkinu Bogmanni. Litir hennar eru grá fjólublár og fjólublár.
TALAN 4.
Hún er tala höfuðáttanna fjögurra, austurs, vesturs, suðurs og norðurs og árstíðanna, vor, sumar, haust og vetur.
Hún er tengd Saturnusi og stjörnumerkinu Steingeit. Litir tölunnar eru dökkgrár og svartur.
TALAN 5.
Hún er tákn frelsis , orku, sköðunarkrafts og ferðalaga.
Hún birtist meðal annars í fimmstjörnunni (pentagramminu).
Talan 5 tengist Merkur og stjörnumerkjunum Tvíbura og Meyju. Allir ljósir litir eru litir tölunnar 5.
TALAN 6.
Hún er tákn ástar, umhyggju, ábyrgðartilfinningar og jafnvægis.
Hún birtist meðal annars í sexarmastjörnunni (gyðingastjörnunni ).
Hún er tengd Venus og stjörnumerkjunum Nauti og Vog.
Litir tölunnar eru ljósblár, blágrænn og grænn.
TALAN 7.
Hún hefur lengi verið talin sérstök heillatala.
Hún tengist sjálfsskoðun og ymiss konar andlegum pælingum. Samkvæmt gömlum hugmyndum býr hún yfir töframætti og í henni sjálf lífshrynjandinn fólginn.
Í hverju kvartili tunglmánaðarins eru um það bil 7 dagar. Þegar Súmerar lögðu grunninn að tímatalsútreikningum sínum út frá gangi himintunglanna, 2000-3000 árum f.Kr.
Reiknuðu þeir með því að hver tunglmánuður skiftist í 4x7 daga, samtals 28 daga, jafnlangur og tunglmánuðirinn.
Síðar komu fram hugmyndir meðal dulspekinga um að mannslíkaminn endurnýjaðist á sjö ára fresti og að líf mannsins varði nokkurn veginn í 7x10 ár.
Talan 7 hefur svo stærðfræðilega eiginleika sem sennilega hafa ýtt undir sérstöðu hennar.
Séu allar tölur frá einum upp í sjö lagðar saman verður útkoman 28, dagafjöldi tunglmánaðarins og tíðahringsins.
Algengasta talan í Biblíunni er 7 og það ýtir undir hugmyndir um að talan sé heilög og um leið happatala.
Höfuðdyggðirnar í kristinni siðfræði eru sjö:
Hófsemi, forsjálni, hugprýði, réttsýni, trú, von og kærleikur.
Dauðasyndirnar eru einnig sjö:
hroki, ágirnd, losti, reiði, græðgi, öfund og leti.
Sjö undur veraldar voru:
pyramídarnir í Eygiptalandi, grafhýsi, Másolasar í Halikarnassos, svifgarðar og múrar Babýlon, musteri artemisar í efesus, Seifslíkneski Feidíasar í Ólympíu, risastyttan af Helíosi við hafnarmynnið á Rhodos og vitinn á eyjunni Faros við Alexandríu.
Orkustöðvar líkamans eru líka sjö:
rótarstöðin, hvatastöðin, magastöðin, hálsstöðin, ennisstöðin og hvirfilsstöðin.
Í sumum fræðum er því haldið fram að jörðin sjálf hafi sjö orkustöðvar sem samsvari til stöðvanna sjö hjá manninum.
En hvar það er, er ekki alveg ljóst.
Talan sjö er tengd neptúnusi og stjörnumerkinu Fiskar.
Litir hennar eru allir grænir og ljósblágrænn.
TALAN 8.
Hún er mjög sterk tala og tengist efnisheiminum, forlögunum og óendanleikanum. Hún er tengd plánetunni Satúrnus og stjörnumerki hennar er Steingeit.
Litir tölunnar atta eru dökkgrár og svartur.
TALAN 9.
Hún er tala alheimsins.
Hún endurspeglar hugsjónir,draumsýnir, heimspeki og fullkomnun.
Talan níu er almennt talin heillatala.
Hún kemur viða við sögu í þjóðtrú og menn hafa í tímans rás haft mikla trú á áhrifamætti hennar.
Níu er margfeldi heilögu tölunnar þriggja með sjálfri sér og er þess vegna sérstaklega kraftmikil og áhrifarík tala.
Veigamikið atriði er að meðgöngutími konunnar níu mánuðir. Sköpun mannsins tekur níu mánuði.
Níu hefur stærðfræðilega sérstöðu.
Það er alveg sama með hvaða tölu hún er margfölduð, þversumma útkomunnar, eða þversumma af þversummunni verður alltaf níu.
Talan er tengd Mars og stjörnumerkjunum Hrút og Sporðdreka. Litur hennar er rauður.

13 Febrúar 2012. kl.19:41
Ótrúlegustu hugboð koma upp hjá mér núna þessa daganna, Dæmi? vindur sem fylgir með hljóði kemur inn í himinhvolf jarðar,Samband næst til jarðar í gegnum Naza að mér finnst,Ný fisktegund finnst,eins ný tegund af trjám.eitthvað nýtt finna visindamenn með mannsheilan okkar, sem aldrei hefur uppgvötast fyrr,svo er eitthvað með himinhvolf jarðar, aftur munu verða vart við ferðir úr og inn í himinhvolf okkar.Ég fæ eitthvað með kjóla og gull,mér finnst eins og að þjóðbúningar okkar aðallega kvenna og eiga þeir eftir að verða vinnsælir um allan heim og eiga þeir eftir að sjást á frægum tískusýningum.eitthvað fæ ég með risasnjókorn eitthvað með nýja skótegund sem eru öðruvísi en á að vera,svo fæ ég eitthvað með óskiljanlega hluti sem munu finnast hér á jörð og eitthvað nýtt sem mun vaxa hér og helst við tré.Svo verður eitthvað vessen með hollywood stjörnunar mjög leiðilegt mál, Annað sem ég fæ upp er með tölvurnar okkar eins og þær eigi eftir að taka völdin af okkur hljómar eins og í ekta hryllingsmynd,talandi um það mér finnst eins og það eigi eftir að framleiða eina svakalegastu hryllingsmynd sem aldrei eins hefur verið gerð til þessa,en þessi mynd á eftir að hafa alvarlegar afleiðingar og það er eins og eitthvað eigi eftir að gerast slæmt,eitthvað sem kemur frá þessari mynd hljómar creppy.?
eitthvað undarlegt mun koma til landsins,en átta mig ekki alveg á því?
en það virkar dökkt og mjög stórt,og mjög flatt...visindamenn uppgvöta eitthvað með nýjan mannslíkama sem þeir eru að þróa og er það mjög undarlegt virkar frekar stór og ber einkennilegan lit.
---------------------------------------------------------------------------------------------
18 Mars 2012. KL. 16:45.

Mér finnst eins og að heimurinn sé að missa alla von og trú,sérstaklega trúna og það leggst ekki vel
í mig og eingin mun ráða við eitt né neitt.Ég fæ eitthvað með himinhvolf okkar og blómategundir ný tegund sem finnst,líkist mjög rós en hefur einstakan ilm.Ný og stór spilling er væntanleg.Nýtt gengi verður til og mun það kalla sig hið góða og hið illa. 9 ELDGOS 9 JARÐSKJÁLFTAR 9 STRÍÐ.
er eitt af því sem ég fæ upp.ég fæ eitthvað sem kemur frá sólinni og er heitt og varasamt.Mér finns sem ég sjái bláa sól sem vísindamenn uppgötva seint á árinu.ég fæ eitthað með ofsahræðslu dýra,undarlegt bréf berst til yfiralda með undarlegri skrift,eingin veit hvaðan það kemur,ég fæ eitthvað með regnbogann og litin af honum.Mér finnst eins og að undarleg bók finnist mjög stór með undarlegri lesningu.eins og hún hafi verið til fyrir tíma biblíunar,mjög undarleg og kemur mjög á óvart.Mér finnst eins og að ný tegund kaffibauna finnist.Svo verður einhver svakaleg skynjun hjá fólki þar sem það finnur eitthvað á sér og mun það tala mikið um það,ég veit ekki alveg hvað þetta er,en óhugnalegt verður það.Svo finnst mér ég skynji eitthvað með 7 slæmar uppskerur hvað varðar mat sem ræktaður er á ökrum og í trjám.Ég fæ eitthvað með óvenjulega þurrka út um allan heim. Mér finnst eins og að sjór hækki og jarðlag sigi en er ekki alveg viss um hvenar það verður kannski næsta ár eða 2013 fæ ég.

Teikningin sem ég sendi ásamt bréfi til FBI.
sendi það byrjun árs 2011.

-----------------------------------------------------------------------------------------
Sjáðið meðfylgjandi mynd sem ég fann á goggle.Undir
Felustaður Osama bin Laden.

Þessa fann ég í dag,og er verið að tala um það að osama hafi látið hanna húsið sitt
eins og landið sitt ,fann þetta inn á síðu sem heitir.www.buisnessinsider.com

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Svona gæti Atlantis Litið Út í Framtíðinni.

Líklegur staður þar sem Mccann stelpan gæti verið.

Nýja Ísland.

Pláneturnar og Bermúdaþrýhirningurinn.